Fara á efnissvæði

12. ágúst 2023

Drulluhlaup

Drulluhlaup Krónunnar og UMFÍ

Drullu- og hindrunarhlaup Krónunnar er hluti af Íþróttaveislu UMFÍ. Drulluskemmtilegt hlaup þar sem fjölskyldan vinnur saman að því að komast í mark í skítugasta hlaupi ársins. Viðburðurinn fer fram 12. ágúst í Mosfellsbæ. 

Helstu upplýsingar

  • Hvar: Íþróttamiðstöðinni Varmá Mosfellsbæ.
  • Dagsetning: Laugardagur 12. ágúst 2023.
  • Hvenær: Kl. 10:00 - 15:00.
  • Hlaupaleið: Leiðin er samtals 3,5 km og inniheldur alls 21 hindrun.
  • Upphaf: Við Íþróttamiðstöðina Varmá.
  • Endir: Við Íþróttamiðstöðina Varmá.
  • Umsjón: Ungmennafélagið Afturelding ásamt UMFÍ. 
Fyrir hverja er við viðburðurinn?

Viðburðurinn er fyrir alla fjölskylduna og eða einstaklinga þar sem tíminn skiptir ekki máli heldur að komast í gegnum allar hindranirnar á leiðinni. Áhersla er lögð á skemmtilega hreyfingu, gleði og samvinnu.

Hvernig fer viðburðurinn fram?

Hlaupaleiðin er drulluskemmtileg og krefjandi en hringurinn er 3,5 km langur með fjölda hindrana sem þarf að yfirstíga. Fjölskyldur hlaupa saman og hjálpast að við að komast í gegnum hindranirnar eða leysa saman þrautirnar. Allir 8 ára og eldri ættu að komast í gegnum brautina með aðstoð foreldra og/eða forráðarmanna.

10 einstaklingar verða ræstir út með 2 mínútna millibili frá kl. 10:00 - 15:00. Við skráningu fá þátttakendur úthlutað tíma.

Rás- og endamark er staðsett við Íþróttahúsið við Varmá og þar verður partýstemning frá því að hlaupið hefst og þar til því lýkur. Þar verður hægt að hvetja keppendur áfram og njóta samverustundar með fjölskyldum og vinum. 

Sérstök drullubraut verður á svæðinu fyrir börn yngri en átta ára. 

Er hægt að skola af sér eftir hlaupið?

Já! Það verður skolstöð á staðnum og frítt í sund fyrir þátttakendur.

Hvað kostar og hvernig fer skráning fram?

Einstaklingsskráning: 3.500 kr. fyrir hvern þátttakanda.

Hópskráning (4 í hóp): 7.000 kr. fyrir hvern hóp með fjórum þátttakendum. Notið kóðann DRULLUHOPUR í reitinn „Afsláttarkóði“ þegar þið skráið ALLAN hópinn í einu.